Upplýsingar
Leikjasaga er samvinnuverkefni forritara og málfræðinga sem hafa brennandi ástríðu fyrir lestrarkennslu. Vefurinn er innblásinn af þekktri söguaðferð sem gengur út á gagnvirkni í lestri þar sem lesandi stjórnar sjálfur framvindu sögunnar sem hann les. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi þessarar aðferðar við lestrarkennslu.
Vefurinn virkar þannig að lesandi velur sér sögu, en sögurnar eru af nokkrum mismunandi erfiðleikastigum. Hver saga getur þróast í mismunandi áttir, allt eftir því hvaða möguleika lesandinn velur hverju sinni. Því hefur hver saga fjölmörg mismunandi endalok, flest þeirra eru góð en þó ekki alveg öll.
Höfundar Leikjasögu standa einnig að baki lestrarkennsluvefnum 100ord.is, sem hefur fest sig rækilega í sessi á heimilum og grunnskólum landsins.
Dagbjört Guðmundsdóttir
málfræðingur
Einar Örn Bergsson
tölvunarfræðingur
Emil Aron Thorarensen
tölvunarfræðingur
Lilja Björk Stefánsdóttir
málfræðingur
Hægt er að hafa samband við okkur á netfanginu 100ord@100ord.is.
Skráðu þig á póstlista og fáðu tölvupóst um nýjar viðbætur og uppfærslur.